Plexígler – efnissala

Plexí plötur litir skorin

Logoflex flytur inn og selur plexígler, sem margir þekkja sem akrýlplast eða PMMA, einnig flytjum við inn Makrolon (pólýkarbónat) og PET-G hitaformunarplast. Sjá upplýsingar um vörurnar hér að neðan.

Plexíplöturnar og Makrolon eru 203 x 305 cm að stærð og seljast sem slíkar eða niðursagaðar í þau mál sem óskað er eftir. Reiknast verð þá hlutfallslega út frá fermetraverði hverrar vöru að viðbættu sögunargjaldi.

Allar pantanir og aðrar fyrirspurnir
berist á netfangið logoflex@logoflex.is eða í síma 414 1900.



Plexígler/akrýlplast (PMMA)
Eftirspurnin er mest eftir glæru plexígleri sem við bjóðum í ýmsum þykktum:
2, 3, 4, 5, 6, 8, 10, 12, 15 og 20 mm.

Einnig eigum við til 3 og 5 mm hvítt plexígler, svart háglans og matt, reyklitað grátt gegnsætt og sandblásið, satínglært og hvítt. Sandblásna plexíglerið eigum við einnig til í 8 og 10 mm þykkum.

Makrolon/pólýkarbónat (PC)
Pólýkarbónat er glært plastefni með gríðarlegan styrk og er oft sagt óbrjótanlegt. Eiginleikar þessa undraefnis gera það tilvalið í hvers kyns öryggisfleti svo sem öryggisrúður og hlífar vinnuvéla og sem vörn gegn innbrotum og/eða skemmdarverkum.
Efnið er til í 3, 4, 6, 8 og 10 mm þykktum, er glært og UV-meðhöndlað gegn skaðlegum geislum sólar.

PET-G/hitaformunarplast
PET plast er það plast sem við þekkjum úr gosdrykkjarflöskum og það hefur frábæra hitaformunareiginleika. Efnið er glært og er til í 0,5 mm, 1 mm, 1,5 mm og 2 mm þykktum.
Ath.! Þetta efni er eingöngu selt í heilum plötum 125 x 205 cm.

Kíktu við hjá okkur og skoðaðu það sem í boði er og fáðu nánari upplýsingar um eiginleika og verð hverrar vöru fyrir sig.

Tengdar vörur

Skrifstofulausnir

Álsmíðakerfi – PORSA

Álplötur

Tengiliður

Garðar Jónsson
Ingi Guðmundsson

Logoflex ehf

Opnunartími

Mán – Fim    8:30 – 12:00
                       13:00 – 16:00
Fös                 8:30 – 12:00
                       13:00 – 15:00
Lau – Sun     Lokað