Ljósmynd
Hjá okkur færðu myndirnar þínar prentaðar á margvíslegan máta.
Álplötur Ljósmyndir settar á álplötur er alltaf vinsæl lausn. Þá er myndin yfirleitt plöstuð með möttu og límd á álplötu. Hægt er að útfæra þetta á ýmsan máta með mismunandi áferðum og útkomum allt eftir því hvað hentar hverju sinni og val er á milli mismunandi upphengilausna.
Strigamyndir Ljósmynd prentuð á striga sem síðan er strekktur á blindramma. Sérsmíðum rammana í öllum stærðum.
Foammyndir Ljósmyndir settar á foam (léttar pappaplötur með frauðkjarna) í 5 og 10 mm. þykkt. Hægt er að fá álramma utan um myndirnar. Einföld og falleg lausn.
Veggfóður. Prentun á veggfóður er flott lausn til að skreyta og heilmerkja veggi heimila jafnt sem fyrirtækja.